- Stjórnafundur Sörla - Fundargerð Stjórnarfundur Sörla
- Fundur nr.: 3 að Sörlastöðum miðvikudaginn 2. janúar 2019
- Mættir stjórnarmenn: Atli Már Ingólfsson, Eggert Hjartarson, Kristín Þorgeirsdóttir, Thelma Víglundsdóttir, Valka Jónsdóttir, Ásta Kara Sveinsdóttir
- Áheyrnarfulltrúi: Sigríður Kristín Hafþórsdóttir framkvæmdastjóri Sörla
- Fjarverandi: Stefnir Guðmundsson
- Ritari fundar: Valka Jónsdóttir
Fyrirliggjandi dagskrá:
- Félagshesthús.
- Samstarf viđ Íshesta.
- Málefni frá framkvæmdastjóra til umræđu
- Starfsáriđ framundan. Helstu verkefni og áherslur og stefna nýrrar stjórnar
- Önnur mál.
1. Félagshesthús
Sörla býðst að leigja hesthús í eitt ár. Ákveðið hefur verið að leigja húsið til eins árs og bjóða upp á aðstöðu fyrir börn, unglinga og ungmenni. Farið verður í nánari útfærslu á félagshesthúsinu, forgangsröðun, reglur o.s.frv. Stofnaður hefur verið vinnuhópur innan stjórnarinnar sem í verða verða Eggert, Thelma, Ásta Kara og Atli Már. Framkvæmdastjóri er starfsmaður hópsins.
2. Samstarf við Íshesta
Rætt um málefni Íshesta. Íshestar er með allt of stóra hópa á reiðgötum Sörla, fáa leiðbeinendur og gífurlegt álag er á reiðgötum, eru komin djúp för hægra megin þær leiðir sem Íshestar ríða. Ennfremur hafa félagsmenn lent í því að Íshestar séu að nota félagsgerði og rekið félagmenn í burtu. Mikil óánægja með samstarfið. Samstarfið er alls ekki nægjanlegt og ekki hefur verið komið til móts við þær athugasemdir sem stjórn Sörla gerði við Íshesta á síðasta starfsári. Tillögum um nýjan samning hefur ekki verið svarað, þar sem stjórn m.a. lagði áherslu á aukna kostnaðarþáttöku Íshesta við viðhald reiðvega.
Gildandi samningur við Íshesta er eftirfarandi:
- 450 þúsund fer á almennu deildina vegna reiðskólans.
- 100 þúsund (félagsgjöld) fara á æskulýðsnefnd v/ungliðastarfs
- 100 þúsund (félagsgjöld) fara á reiðveganefnd v/viðhalds á reiðvegum
- 100 þúsund styrkur vegna kaupa á verðlaunum sem fer á mótanefnd vegna íshestamótsins
Brýnt mál að endurskoða samstarfssamning við Íshesta.
3. Málefni frá framkvæmdastjóra
- Hestafjör verður haldið aftur í mars og apríl, alls 6 skipti, laugardagsmorgna. Boðið verður upp á Hestafjör 1, 2 og 3. Verið er að ræða við reiðkennara.
- Mikil ásókn í knapamerkin og lítur út fyrir að það verði 5 hópar sem hefji nám í knapamerki 3, 4 og 5.
- Gamanferðir hafa óskað eftir samstarfi við Sörla þannig að ef fólk kaupir ferðir í gegnum Gamanferðir styrkir það Sörla í leiðinni með afsláttarkóða.
- Félagsmennirnir Ásbjörn og Kristján ætla að fara í að skoða græju aftan í fjórhjólið til tæta gólfið í reiðhöllinni. Það mun auðvelda til muna það verk.
- Skipta þarf um lyklakerfi að reiðhöllinni þar sem ekki er hægt að uppfæra gamla kerfið. Farið verður í það nú í janúar. Innkalla verður alla virka lykla þegar nýtt kerfi tekur gildi og fær fólk nýja lykla í stað þeirra sem það er með nú.
- Fara þarf í að setja upp hljóðkerfið sem fyrst. Rætt verður við nokkra til að fara í þetta mál. Til að byrja með verður unnið að því að laga hljóðkerfið inn í reiðhöll.
- Búið að ræða við Hafnarfjörð því það vantar efni bæði í reiðvegi og akvegi í hesthúsunum. Þeir draga lappirnar aðeins varðandi þetta mál en þetta er brýnt og verður haldið áfram að herja á bæinn.
- Samningur vegna rekstur veitingarsölunnar er í farvatninu.
- Undirbúa þarf fundi með nefndum. Framkvæmdastjóri stillir upp fundartíma með nefndum.
4. Starfsárið framundan
Stóru verkefnin eru áframhaldandi vinna við undirbúning byggingu nýrrar reiðhallar, koma félagshesthúsi á fót og endurbætur á keppnisvöllum. Önnur stefnumarkandi málefni voru rædd og munu stjórnarmenn halda áfram með þá vinnu fyrir næsta fund.
5. Önnur mál
- Öryggisvesti
Öryggisvesti með merkingunni ,,Aðgát“ verða saumuð á næstunni og mun fólk geta nálgast þau á Sörlastöðum. Öryggisvestin eru ætluð öllum sem þurfa sérstaka tillitsemi á reiðvegum svo sem þegar knapi er á ungum tryppum, viðkvæmum hestum, er óvanur og fl.
Stjórn vill samt sem áður vekja athygli á því að félagsmenn eiga að sýna hver öðrum tillitsemi á reiðvegunum. Auglýst verður á vefnum þegar þau eru tilbúin.
- Lýsing skógarhrings
Búið er að hafa samband við HS veitur út af lýsingunni á reiðvegunum. Ekki er hægt að skipta um perur þ.s. fyrr en frystir. Það vantar frost í jörðu til þess að það sé hægt að keyra körfubíl inn á reiðvegina og laga þá staura sem ekki eru í lagi. HS veitur eru búnir að þeir eru búnir að lofa að koma um leið og frystir og laga lýsinguna.
- Lýsing Kaldárselsvegur
Keyrður niður staur á Kaldárselsveg, rétt fyrir ofan Hlíðarþúfur og við það fór lýsingin út á þessum kafla. Hafnarfjarðarbær verður að setja nýjan staur svo HS veitur geti komið lýsingunni aftur á. Hafnarfjarðarbær ætlar að skipta út tréstaurum á þessu svæði fyrir nýja staura og því hefur þetta tekið lengri tíma. Framkvæmdastjóri mun halda áfram að ýta á bæinn að laga lýsinguna enda bráðnauðsynlegt að koma lýsingu í lag, öryggisins vegna.
- Íslandsmót
Íslandsmót verður haldið sameiginlega með öllum hestamannafélögum höfuðborgarsvæðisins. Atli formaður ætlar að ræða aðra formenn um næstu skref.
___
Næsti stjórnarfundur verður haldinn miðvikudaginn 6. febrúar kl. 19.30.
Fundi slitið kl. 22.30
Samþykkt,
dags: 5 janúar 2019
fyrir hönd stjórnar
Atli Már Ingólfsson