Efni: Stjórnarfundur Sörla
Fundur nr.: 3 - 2021
Staður og stund: Sörlastaðir, þriðjudagur 3. mars 2021
Mættir stjórnarmenn: Atli Már Ingólfsson, Ásta Kara Sveinsdóttir, Kristján Jónsson, María Júlía Rúnarsdóttir. Kristín Þorgeirsdóttir.
Áheyrnarfulltrúi: Sigríður Kristín Hafþórsdóttir, framkvæmdastjóri Sörla
Fjarverandi: Stefnir Guðmundsson og Sveinn Heiðar Jóhannesson.
Ritari fundar: Ásta Kara Sveinsdóttir
- Sendir voru reikningar vegna félagsgjalda.
- Aðalfundur
- Stjórn verið upplýst um tvö framboð til stjórnar.
- Verið er að klára frágang ársreiknings fyrir aðalfund.
- Stjórn vonar að ekki verði öllu skellt í lás og hægt verði að halda aðalfund. Ef svo verður, verður hægt að athuga hvort væri möguleiki að streyma fundinum.
- Auglýsing tilboða í hönnun reiðhallar. Staða málsins
Núna er hönnun reiðhallar komin í auglýsingu. Fólk hefur til 30 mars. að bjóða tilboð í lokahönnun.
Rætt um tilboðsgerð og kröfur, umræður um mögulega skilgreiningu á löglegum keppnisvelli innanhúss. Hvort mögulega þurfti að bregðast við því í hönnunarferlinu eða ekki.
- Happdrætti
- Núna þurfa stjórnarmeðlimir og framkvæmdastjóri að fara á fullt að leita af vinningum fyrir hið árlega happdrætti Sörla. Framkvæmdastjóri sér um utanumhald vinninga og lætur vinna auglýsingar ofl.
- Frá framkvæmdarstjóra:
- Reiðhallargólf – kostnaðaráætlun og framkvæmdatími – leki í lofti
Komin er hugmynd af gólfefni sem setja ætti í höllina. Efnið er unnið af brettavinnslunni í Hveragerði. Óskað verður eftir sambærilegu tilboði hjá Furuflís.
Gólfið í höllinni verður tekið í gegn 28. 29 og 30. mars. Framkvæmdin mun kosta um það bil 2.5 miljónir.
- Íslandsmót barna og unglinga – framkvæmdanefnd.
Búið er að auglýsa eftir sjálfboðaliðum í framkvæmdanefnd mótsins.
- Kynbótasýningar – framkvæmd
Bætt verður efni á brautina í vor, búið er að ræða við verktaka sem mun sjá um það.
Búið er að semja um verð við RML um fæði ofl. fyrir dómar.
- Mót – styrkir
Ekki gengur nægilega vel að fá styrki fyrir mót hjá félaginu. Stjórn vill hjálpa mótanefnd að sækja um styrki. Rætt um hver talar við hvern.
- Lýsing á reiðvegum
Stjórn þarf að vinna í því að senda erindi að bæta þurfi lýsingu á svæðinu. Helst þyrfti lýsingu á kafla milli stóra og litla hrings
- Kerrusvæði
Helst þyrfti að stækka kerrustæðið, þar sem það er of lítið.
Senda þyrfti erindi á bæinn varðandi lokanir í hverfinu. Vegna hraðaaksturs getur verið hættulegt hversu hratt sumir keyra í gegnum hverfið. Vegna öryggis leggur stjórn til tvær lokanir á svæðinu. Kynna á tillögu stjórnar fyrir eigendum húsa við götuna áður en erindið er sent Hafnafjarðarbæ.
- Zetor
Zetorinn er komin til ára sinna, algjört aðstöðuleysi hjá okkur til að sjá um lágmarksviðhald á vélinni sem er bagalegt.
- Önnur mál.
Fundi slitið, 9 mars 2021
Kl 22:10