Uppskeruhátíð hestamanna verður haldin á Gullhömrum í Grafarholti 10. janúar næstkomandi. Gullhamrar er einn glæsilegasti veitinga- og veislustaður á landinu í dag og ætti því enginn að láta sig vanta á þessa frábæru hátíð okkar hestamanna. Dagskráin verður með sama móti og venjulega. Verðlaunaafhendingin verður á sínum stað, dýrindis þriggja rétta máltíð og að sjálfsögðu dönsum við saman langt fram eftir nóttu eins og okkur hestamönnum er einum lagið. 

Viðburðinn er hægt að finna á facebook: https://www.facebook.com/events/395865530579934/

Hinn þjóðþekkti sjónvarpsmaður Gísli Einarsson verður veislustjóri og svo mun hljómsveitin Rokk halda uppi fjörinu en í henni eru þeir: 

Hreimur Örn - gítar og söngur 

Pálmi Sigurhjartarson - píanó og söngur 

Benedikt Brynleifsson - trommur 

Róbert Þórhallsson - bassi 

Vignir Snær - gítar og söngur 

Þriggja réttar máltíðin verður með glæsilegu móti: 

Forréttur - Austurlensk sjávarréttasúpa með karrí og kókos 

Aðalréttur - Lambahryggvöðvi með kartöfluköku, steiktum skógarsveppum og lambasoðsósu 

Ábætisréttur - Suðrænn kókosdraumur með berjablöndu og crumble. 

Ekki láta þig vanta á eina glæsilegustu uppskeruhátíð til þessa! 

Fyrstir koma fyrstir fá! 

Miðasalan fer fram á gullhamrar@gullhamrar.is eða í síma 517-9090 

Miða og borðapantanir verða til kl. 18, þriðjudaginn 6. janúar. 

Miðar verða afhentir miðvikudaginn 7. janúar í Gullhömrum. 

Verð: 9600 kr. 

Selt inn á dansleik frá 23.30. Verð 2.500 krónur 

Gestir þurfa að senda kvittun á gullhamrar@gullhamrar.is og þá verður tekið frá borð á þeirra nafni. 

Borðaröðun fer fram þegar miðasölu lýkur! 

 

 

Birtingardagsetning: 
föstudaginn, 2. janúar 2015 - 16:04