Hið árlega Karlatölt Spretts var haldið 18 apríl síðastliðinn.  Þar var keppt í þremur styrkleikaflokkum 

  • T7 minna vanir
  • T3 meira vanir
  • T3 opinn flokkur

Sörlamenn létu sig ekki vanta á þennan góða viðburð og mættu sjö Sörlamenn með átta hesta til leiks.

  • Anton Haraldsson og Glóey frá Hlíðartúni
  • Arngrímur Svavarsson og Frigg frá Árgilsstöðum
  • Bjarni Sigurðsson og Eysteinn frá Efri-Þverá
  • Guðni Kjartansson og Ársól frá Bakkakoti
  • Haraldur Haraldsson og Afsalon frá Strönd II
  • Sigurður Gunnar Markússon og Alsæll frá Varmalandi
  • Svavar Arnfjörð Ólafsson með Sjón frá Útverkum og Vífil frá Lindarbæ 

Þetta var hin mesta skemmtun því margir Sörlafélagar voru mættir á bekkinn til að styðja sína menn og gleðin var allsráðandi.

Einn Sörlafélagi og hesturinn hans komust í úrslit en það voru þeir Sigurður Gunnar Markússon og Alsæll frá Varmalandi sem komust í A úrslit í T3 meira vanir og enduðu í 2 - 3 sæti.  

Til hamingju með það Sigurður!

Birtingardagsetning: 
mánudaginn, 23. apríl 2018 - 9:01
Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll
Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll
Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll
Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll
Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll
Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll
Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll