Hin árlega hrossaræktarráðstefna fagráðs fer fram á Hótel Sögu, laugardaginn 2. nóvember og byrjar klukkan 14:00.
Fundarsalurinn heitir Katla og er á 2. hæð. Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og allt áhugafólk um hrossarækt er hvatt til að mæta.
Á dagskrá er umfjöllun um nýtt ræktunarmarkmið og helstu breytingar á dómskalanum, yfirferð yfir hrossaræktarárið og verðlaunaveitingar.
Nánari upplýsingar er að finna á Eiðfaxa. Smellið hér
Birtingardagsetning:
miðvikudaginn, 23. október 2019 - 16:30