Nú er skráning á námskeið í fullum gangi og jafnframt verið að kanna áhuga á nokkrum námskeiðum. Félagsmenn eru beðnir um að kynna sér námskeiðin og senda póst á ss@sorli.is ef áhugi er fyrir hendi. Tilkynning frá íþróttastjóra:

Örfá pláss laus á Keppnisnámskeið með Sylvíu

Börn,unglingar og ungmenni ganga fyrir í skráningu.  Þann 20. janúar verður opnað fyrir skráningu fullorðinna ef eitthvað er laust.

Kennt verður á föstudögum fyrstu tímar kl. 14.00-14.45, 14.45-15.30,o.sfr.v.

Námskeið fyrir þá knapa sem ætla að taka þátt í mótum og vilja aðstoð við undirbúning og þjálfun.

Til að auðvelda skipulag væri gott að fram kæmi í athugasemdun í skráningu hvaða tími hentar best.  Hver tími er 45.mín og eru tveir nemendur í hverjum tíma.

Kennsludagar: 6-13-20- 27. febrúar og 6-13-20-27.mars.

Kennari: Sylvía Sigurbjörnsdóttir

Verð:  31.000

Skráning:ibh.felog.is(link is external) Þá er mikilvægt að haka við Samþykkja skilmála.

Eftir að viðkomandi hefur skráð sig inn er þetta nokkuð ljóst. Síðan þarf maður að velja aðildarfélag í okkar tilfelli á að smella á lógóið fyrir IBH og þá koma þau námskeið sem eru í boði.

 

Helgarnámskeið með Antoni Páli Níelssyni

Því miður urðum við að færa þetta námskeið fram um eina helgi þannig að  kennt verður 13-14 og 15 febrúar.  Þeir sem nú þegar hafa skráð sig eru beðnir um að láta vita ef þeir geta EKKI nýtt sér þessa nýju tímasetningu.

Skemmtilegt námskeið með einum reyndasta reiðkennara landsins .

Bóklegur tími á föstudagskvöldi farið yfir áhersluatriði hvers og eins. Þá verður raðað niður í tímar  svo einkatímar á laugardegi og sunnudegi. Nemendur fylgjast með kennslu hver hjá öðrum.

Verð kr. 29.000

Skráning:ibh.felog.is(link is external) Þá er mikilvægt að haka við Samþykkja skilmála.

Eftir að viðkomandi hefur skráð sig inn er þetta nokkuð ljóst. Síðan þarf maður að velja aðildarfélag í okkar tilfelli á að smella á lógóið fyrir IBH og þá koma þau námskeið sem eru í boði.

 

Skeiðnámskeið með Sigurbirni Barðarsyni

Fyrirhugað er skeiðnámskeið með einum reyndasta skeiðreiðarmanni landsins ef næg þátttaka fæst.  Spennandi námskeið fyrir þá sem hafa áhuga á að byggja upp skeiðhestinn sinn.

Kennt verður bæði úti og inni einnig verður einn bóklegur tími. Fyrirhugað er að hafa tvo tíma í byrjun febrúar þar sem nemendur fá heimaverkefni þá verður tími í lok febrúar og svo tveir tímar í mars.

Þeir sem hafa áhuga eru beðnir um að senda mail á ss@sorli.is(link sends e-mail)  Rétt er að taka fram að þetta er ekki skráning heldur könnun a áhuga.  Skráning verður auglýst síðar ef áhugi reynist vera fyrir hendi.

 

Nýjung Fimleikar á hesti.

Kennt er á laugardagsmorgnum  4-6 knapar í hóp.   Þetta er EKKI hefðbundið reiðnámskeið heldur eru knapar hringteymdir á fet og/eða,brokki  og gerðar ýmsar æfingar á hestinum.

 Nemendur þurfa að vera aðeins hestvanir og óhræddir

Nemendur þurfa ekki að eiga hest

Þeir sem hafa áhuga eru beðnir um að senda mail á ss@sorli.is(link sends e-mail)  Rétt er að taka fram að þetta er ekki skráning heldur könnun a áhuga.  Skráning verður auglýst síðar ef áhugi reynist vera fyrir hendi.

 

TRECK  námskeið verður haldið ef nægur áhugi er fyrir hendi.

Kennsluáætlun er 21-22 febrúar og svo 7 mars.  U.þ.b. 90 mín í hvert skipti.

Þeir sem hafa áhuga eru beðnir um að senda mail á ss@sorli.is(link sends e-mail)  Rétt er að taka fram að þetta er ekki skráning heldur könnun a áhuga.  Skráning verður auglýst síðar ef áhugi reynist vera fyrir hendi.

Birtingardagsetning: 
föstudaginn, 16. janúar 2015 - 9:35
Diddi, Skeið, Sigurbjörn Bárðarson