Árlegur þorrareiðtúr verður farinn laugardaginn 1 febrúar.

Lagt verður af stað frá Sörlastöðum kl 13:00 og riðinn hóflega langur hringur.

Í áningu verður síðan boðið upp á rammíslenskar þorraveitingar að hætti hússins. Vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta á þennan skemmtilega viðburð og svo er þetta auðvitað upplagt til að koma sér í gírinn fyrir Þorrablót Sörla.

Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll
Frá: 
Ferðanefnd