Á uppstigningadag 10. maí ætlar ferðanefndin að breyta til og bjóða vinum okkar í Dreyra í heimsókn og reiðtúr.
Klukkan 14:00 verður lagt af stað frá Sörlastöðum. Farið verður í ca. klukkutíma reiðtúr. Að reiðtúrnum loknum verður grillað á Sörlastöðum.
Skráning fer fram á ferdanefnd@sorli.is seinastalagi fyrir hádegi á miðvikudag 9. maí.
Við erum búin að panta rjómablíðu, gleði og glens. Við eigum ekki von á öðru en að það standist.
Vonumst til að sjá sem flesta,
Ferðanefndin