Á nýafstöðnu Hafnarfjarðarmeistaramóti Sörla og HS Orku voru veitt verðlaun fyrir samanlagða fjórgangs- og fimmgangssigurvegara. Voru þeir kynntir á facebook á sérstökum viðburði mótsins þar sem mótshaldarar héldu úti lifandi niðurstöðum.
Upp kom ágreiningur um það hvernig fimmgangssigurvegari í 1. flokki væri reiknaður út en samkvæmt útreikningum mótanefndar, sem staðfest var af yfirdómara Magnúsi Lárussyni, var árangur í 100m skeiði tekinn með í útreikningi á samanlögðum sigurvegara í fimmgangi. Ágreiningurinn fólst í því hvort árangur í 100m skeiði mætti teljast inn í samanlagðan sigurvegara eða ekki, þar sem 100m skeiðið væri ekki flokkaskipt.
Skv. grein 8.3.9.2. í nýjustu lögum og reglum LH um samanlagðar greinar er svo sagt um fimmganginn:
Samanlagður fimmganggangssigurvegari er parið sem fær hæsta samanlagða einkunn úr þremur keppnisgreinum.
Einunings ein grein telur úr hverjum flokki
- Flokkur I : Tölt (T1/T3) eða Tölt (T2/T4)
- Flokkur II: Fimmgangur (F1/F2)
- Flokkur III: 250m skeið (P1) eða Gæðingaskeið (PP1) eða Flugskeið (P2).
Einkunnir úr forkeppni gilda.
Í lögunum kemur ekki fram að krafa sé um að 100m. skeið sé flokkaskipt. Haft var samband við fleiri íþróttadómara og fengið álit þeirra. Eftir þær umræður er niðurstaða mótanefndar óbreytt.
Samanlagðir sigurvegarar á Hafnarfjarðarmeistaramóti Sörla og HS Orku
Meistaraflokkur | Knapi | Hestur | Tölt/ Slaktaumatölt |
Fjórgangur | Fimmgangur | Gæðingaskeið/ 100m skeið/ 250m skeið |
Samtals |
Fjórgangssigurvegari | Snorri Dal | Sæþór frá Stafholti | 6.60 | 6.47 | 13.07 | ||
Fimmgangssigurvegari | Hinrik Þór Sigurðsson | Happadís frá Aðalbóli 1 | 6.07 | 5.40 | 4.88 | 16.35 | |
1. flokkur | Knapi | Hestur | Tölt/ Slaktaumatölt |
Fjórgangur | Fimmgangur | Gæðingaskeið/ 100m skeið/ 250m skeið |
Samtals |
Fjórgangssigurvegari | Kristín Ingólfsdóttir | Garpur frá Miðhúsum | 6.07 | 6.07 | 12.14 | ||
Fimmgangssigurvegari | Ingibergur Árnason | Sólveig frá Kirkjubæ | 4.80 | 5.03 | 5.38 | 15.21 | |
2.flokkur | Knapi | Hestur | Tölt/ Slaktaumatölt |
Fjórgangur | Fimmgangur | Gæðingaskeið/ 100m skeið/ 250m skeið |
Samtals |
Fjórgangssigurvegari | Stella Björg Kristinsdóttir | Drymbill frá Brautarholti | 5.77 | 5.87 | 11.64 | ||
Fimmgangssigurvegari | Stella Björg Kristinsdóttir | Dagmar frá Kópavogi | 3.03 | 4.13 | 0.17 | 7.33 | |
Ungmennaflokkur | Knapi | Hestur | Tölt/ Slaktaumatölt |
Fjórgangur | Fimmgangur | Gæðingaskeið/ 100m skeið/ 250m skeið |
Samtals |
Fjórgangssigurvegari | Jónína Valgerður Örvar | Gígur frá Súluholti | 5.63 | 5.67 | 11.30 | ||
Fimmgangssigurvegari | Enginn knapi/hestur uppfyllti skilyrði | ||||||
Stigahæsti unglingur | Knapi | Hestur | Tölt/ Slaktaumatölt |
Fjórgangur | Fimmgangur | Gæðingaskeið/ 100m skeið/ 250m skeið |
Fimi A |
Enginn unglingur uppfyllti skilyrði | |||||||
Stigahæsta barn | Knapi | Hestur | Tölt | Fjórgangur | Fimi A | ||
Ekkert barn uppfyllti skilyrði |