Hafnarfjarðarmeistaramót Sörla 2020 var haldið dagana 13. - 17. maí.
Ákveðið var að hafa mótið opið, skráning var mjög góð og mótið sterkt og skemmtilegt.
Öll úrslit má finna í pdf skjölum hér neðst á síðunni.
Mótanefnd vill þakka öllum keppendum, sjálfboðaliðum, aðstandendum, þulum, riturum, fótaskoðunarmönnum, vallar-starfsfólki og þeim sem fylgdust með mótinu á Sörlavöllum nú eða í sjónvarpsútsendingu ALENDIS.TV fyrir gott mót. Það var sérstaklega gaman að sjá hversu margir voru í "bíla-brekkunni" og sátu einnig í brekkunni með 2metra á milli sín
Einnig viljum að þakka öllum þeim styrktaraðilum sem styrktu mótið, en það voru:
Sproti netverslun gaf hringtaumsgjörð fyrir 1.sæti í gæðingaskeiði 21árs og yngri og ístöð í 1sæti í V2 Ungmennaflokki. https://sprotinn.is
KB - Kaupfélag Borgfirðinga gaf verðlaun í öllum fjórgangsgreinum.
Lífland : Gaf höfuðleður í 1.sæti Tölt T3 barna og unglingaflokka.
Frosti ÞH - Styrkti með peningagjöf.
DK Hugbúnaður - Styrkti með peningagjöf.
Tannhjól - Mánafoss - styrktu með peningagjöf.
Hekla bílaumboð skaffaði dómaraliðinu okkar splúnkunýja bíla.
AM Ingólfsson - styrkti með peningagjöf.
DDan design styrkti barnaflokkinn með gjöf að þremur verðlaunaborðum fyrir Hafnarfjarðarmeistara.
Þetta mót heppnaðist stórvel og stefnan sett hátt fyrir næsta mót á næsta ári.
Sjáumst hress þá.
Mótanefnd Sörla.